HSS
HSS

Íþróttir

Síðasta umferð fyrir jól í körfuboltanum
Fimmtudagur 15. desember 2016 kl. 10:32

Síðasta umferð fyrir jól í körfuboltanum

Njarðvíkingar styðja góð málefni

Í kvöld fer fram heil umferð í Domino´s deild karla í körfubolta sem er jafnframt sú síðasta fyrir jólafrí. Liðin í Reykjanesbæ leika bæði á heimavelli sínum en liðin eru í botnbaráttunni um þessar mundir. Njarðvíkingar eru í 11. sæti og Keflavík í því 10. Grindavík mætir Skallagrím á útivelli.

Njarðvík og Þór Þorlákshöfn mætast í Ljónagryfjunni. Allur ágóði miðasölu á leikinn í kvöld mun renna til Fjölskylduhjálpar Íslands og Neyðarsöfnunar Unicef fyrir börn í Sýrlandi. Njarðvíkingar hafa tapað tveimur leikjum í röð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Keflvíkingar fá ÍR-inga í heimsókn þar sem Suðurnesjamenn vonast til þess að halda áfram á sigurbraut eftir að þeir lögðu Þórsara á Akureyri.

Grindvíkingar fara til Borgarness og glíma við Skallagrímsmenn. Grindvíkingar eru í fjórða sæti deildarinnar.