Síðasta augnablik Grindvíkinga á Víkurfréttamynd
Öll leiktíðin var undir í síðustu sókn Grindavíkur gegn KR í oddaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla í gærkvöldi. Í stöðunni 84:83 voru Grindvíkingar í sókn með því að setja boltann niður hefði titillinn að öllum líkindum orðið þeirra. Brenton Birmingham fékk boltann við teig KR-inga. Hann freistaði þess að finna samherja en KR vörnin sá við Brenton og blakaði boltanum til Fannars Ólafsson sem hljóp út leikklukkuna við mikinn fögnuð KR-inga. Lokatölur því 84-83 KR í vil sem eru Íslandsmeistarar leiktíðina 2008-2009.
Hilmar Bragi, ljósmyndari Víkurfrétta, fangaði augnablikið þegar segja má að Grindvíkingar hafi misst sjónar af Íslandsmeistaratitilinum, síðustu snertingu Grindvíkinga við boltann. Á næstu mynd er Fannar Ólafsson kominn með knöttinn og hélt honum út leiktímann og hefur örugglega ekki ennþá látið frá sér boltann.

Síðasta snerting Grindvíkina við knöttinn og Íslandsmeistaratitillinn þar með úr augsýn.

Boltinn berst til Fannars Ólafssonar, fyrirliða KR-inga, sem veit varla hvernig hann á að hegða sér með knöttinn. Grindvíkingar hverfa ofan í treyjur sínar í baksýn.

Leikklukkan rennur út og allt gjörsamlega sturlast í DHL-höllinni. Vonbrigði grindvísku áhorfendanna leyna sér ekki.

Fannar með knöttinn eftir að leikurinn hafði verið flautaður af. Hann hefur ekki enn sleppt takinu á boltanum samkvæmt síðustu fréttum.