Shelton frábær í naumum Grindavíkursigri
Grindavík sigraði Hauka, 75:70 í 1. deild kvenna í körfuknattleik í kvöld en leikið var að Ásvöllum. Leikurinn var mjög jafn en gestirnir höfðu þó ávallt yfirhöndina og staðan í hálfleik 39-43, Grindavíkurstúlkum í hag. Yvonne Shelton átti frábæran leik í liði Grindavíkur, skoraði 39 stig og hirti 14 fráköst.
Eftir leikinn eru Grindavíkurstúlkur í 2. sæti með 16 stig, 10 stigum á eftir toppliði Keflavíkur.
Eftir leikinn eru Grindavíkurstúlkur í 2. sæti með 16 stig, 10 stigum á eftir toppliði Keflavíkur.