Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sex Suðurnesjamenn í byrjunarliði Stjörnuleiksins
Sunnudagur 9. janúar 2005 kl. 23:04

Sex Suðurnesjamenn í byrjunarliði Stjörnuleiksins

Sex leikmenn af Suðurnesjum hafa verið valdið í byrjunarlið Stjörnuleiksins 2005. Þrír í liði erlendra leikmanna og þrír úr hópi Íslendinga.

Íþróttafréttamenn stóðu fyrir valinu að þessu sinni og hlaut Friðrik Stefánsson atkvæði frá öllum sem tóku þátt.

Byrjunarliðin skipa:

Lið íslenskra leikmanna:
Friðrik Stefánsson, Njarðvík
Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík
Páll Axel Vilbergsson, Grindavík
Hlynur Bæringsson, Snæfelli
SigurðurÞorvaldsson, Snæfelli

Lið erlendra leikmanna:
Anthony Glover, Keflavík
Clifton Cook, Skallagrími
Nick Bradford, Keflavík
Darrrell Flake, Fjölni
Darrell Lewis, Grindavík

Aðrir leikmenn í liðunum verða tilkynntir mánudaginn 10. janúar nk, en val íþróttafréttamanna gildir um fyrstu 10 leikmennina. Þjálfarar liðanna, þeir Sigurður Ingimundarson og Einar Árni Jóhannsson velja tvo síðustu leikmennina í hópunum.

Leikurinn fer fram í Valsheimilinu laugardaginn 15. janúar næstkomandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024