Sex Suðurnesjakonur í æfingahópi landsliðsins
Enska kvennalandsliðið í körfuknattleik kemur í heimsókn hingað til lands um næstu helgi. Munu þær leika þrjá æfingaleiki við íslenska kvennalandsliðið en leikirnir eru liður í undirbúningi kvennalandsliðsins fyrir Smáþjóðaleikana í Andorra. Smáþjóðaleikarnir hefjast næstu mánaðarmót.
Ívar Ásgrímsson, þjálfari, hefur valið æfingahóp landsliðsins þar sem m.a. má finna sex leikmenn af Suðurnesjum. Hópurinn er eftirfarandi:
Alda Leif Jónsdóttir ÍS
Signý Hermannsdótti ÍS
Þórunn Bjarnadóttir ÍS
Stella Rún Kristjánsdóttir ÍS
Birna Valgarðsdóttir Keflavík
Rannveig Randversdóttir Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík
María Ben Erlingsdóttir Keflavík
Ingibjörg Vilbergsdóttir Njarðvík
Helga Jónasdóttir Njarðvík
Kristrún Sigurjónsdóttir Haukar
Pálína Gunnlaugsdóttir Haukar
Helena Sverrisdóttir Haukar
Helga Þorvaldsdóttir KR
Hildur Sigurðardóttir Jamtland
Leikirnir við England verða 20. maí, 21. maí og 22. maí. Staðsetning leikjanna verður tilkynnt síðar.
www.kki.is
VF-mynd/ frá leik Keflavíkur og ÍS í vetur