Sex stiga leikur hjá Grindvíkingum
Eftir örlítið fríi fer íslenski fótboltinn aftur af stað á morgun. Í Grindavík taka heimamenn á móti Fram í Pepsi-deild karla. Þar fer sennilega fram mikilvægasti leikur Grindvíkinga í lengri tíma en bæði þessi lið eru á botni deildarinnar og þurfa nauðsynlega á stigum að halda. Grindvíkingar eru 6 stigum á eftir Fram og gætu því komið sér á beinu brautina og nær öruggu sæti í deildinni að ári með sigri.
Keflvíkingar heimsækja Stjörnumenn í Garðabæ. Stjarnan er í 3. sæti deildarinnar meðan Keflvíkingar eru í 7. sæti. Þó munar ekki nema 4 stigum á liðinum en liðin um miðja deild eru í frekar þéttum pakka og munar ekki nema 4 stigum á 9. og 3 sæti deildarinnar.
Staðan: