Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sex Reykjanesmet féllu í kraftlyftingum
Mánudagur 10. nóvember 2008 kl. 10:34

Sex Reykjanesmet féllu í kraftlyftingum

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Reykjanesmótið í kraftlyftingum var haldið í Íþróttahúsi Njarðvíkur á laugardaginn. 12 keppendur mættu til leiks  og sex Reykjanesmet féllu. Rannveig Erla Guðlaugsdóttir  bætti Reykjanesmetið í 67,5 kg  flokki í réttstöðulyftu, lyfti 115 kg.  Hörður Birkisson sett ný met í öldungaflokki 50-60 ára í 75k g flokki.  Hann  lyfti fyrst 110 kg í bekk  og svo 180 kg í réttstöðu, en ekki voru til skráð met í þessum flokki svo að Hörður á nú metin í þessum flokki og í karlaflokki í 67.5 kg. 

Herbert Eyjólfsson bætti gamalt bekkpressumet Hauks Guðmundssonar í flokki öldunga 40-50 ára.  Hann lyfti 135 kg og setti nýtt réttstöðumet í sama flokki lyfti 190 kg.  Stefán S. Svavarsson setti met í réttstöðulyftu öldunga 40-50 ára í 110 kg flokki, lyfti  205 kg. Þá bætti Guðmundur “Handleggur” Erlingsson  eigið Reykjanesmet og lyfti 272,5 kg í réttstöðu í +125 kg flokki.

Besta stigaárangur kvenna í bekkpressu og réttstöðulyftu hlaut Rannveig Erla Guðlaugsdóttir.
Besta stigaárangur karla í bekkpressu og réttstöðulyftu hlaut Guðmundur S Erlingsson.
Besta stigaárangur í samanlögðum árangri náði Guðmundur S Erlingsson.