Sara Rún klárar tímabilið með Keflavík
Landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir mun spila með uppeldisfélagi sínu Keflavík út tímabilið en hún er væntanleg til landsins um miðjan mars. Sara hefur leikið í háskólaboltanum með liði Canisius háskólans þaðan sem hún er að útskrifast. Þar hefur hún verið í lykilhlutverki og vaxið mikið sem leikmaður síðan hún yfirgaf Keflvíkinga árið 2015.
Frá þessu er greint á Facebook síðu Keflvíkinga.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				