Sara Rún á leið í háskólanám í Bandaríkjunum
Fékk skólastyrk við Canisius College í New York
Sara Rún Hinriksdóttir, einn besti leikmaður Keflavíkur í körfuknattleik, er á leið í háskólanám í Bandaríkjunum í sumarlok. Sara hefur fengið fullan skólastyrk við Canisius College í New York og mun leika körfubolta fyrir skólann samhliða námi.
Canisius College leikur í 1. deild háskólaboltans en Haukastúlkan Margrét Rósa Hálfdánardóttir leikur með skólanum og verður Sara því ekki eini Íslendingurinn í liðinu. Fjölmargir íslenskir leikmenn eru nú í háskólanámi ytra og virðist ekkert lát vera á þeirri þróun.
Sara stendur í ströngu þessa dagana með Keflvíkingum en lokaúrslit Domino´s deildar kvenna hefjast á miðvikudaginn þar sem að Keflavík mætir deildarmeisturum Snæfells í Stykkishólmi.