Íþróttir

Sara keppir í kraftlyftingum í Houston
Föstudagur 27. nóvember 2015 kl. 14:00

Sara keppir í kraftlyftingum í Houston

Fylgist með í beinni útsendingu

Í dag hefur Njarðvíkingurinn Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir keppni á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fer í Houston í Bandaríkjunum. Sara mun þar keppa í -75 kg flokki.

Sara eins og hún er jafnan kölluð, komst í landsliðið í ólympískum lyftingum árið 2014, hún hlaut brons á Norðurlandamótinu í Noregi ásamt því að setja sex Íslandsmet í greininni það árið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hennar helsta grein er þó Crossfit þar sem hún hefur náð mögnuðum árangri. Evrópumeistaratitill og þriðja sæti á sínum fyrstu heimsleikunum eru til vitnis um það.

Fylgjast má með Söru keppa í beinni útsendingu hér. Keppnin hefst klukkan 15:00.