Sara er efst Íslendinga á heimsleikunum
Er í fjórða sæti eins og stendur
Njarðvíkingurinn Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir er efst Íslendinga á heimsleikunum í crossfit sem fram fara í Kalíforníu um þessar mundir. Þar situr hún í fjórða sæti í heildina eftir að hafa nælt sér í fjórða sæti í í sjósundi. Í dag er svo keppt í þremur greinum til viðbótar og verður spennandi að sjá hvort Sara fikrist ekki nær toppnum.