HSS
HSS

Íþróttir

Sara Björk í heimsókn til knattspyrnuskóla Þróttar
Föstudagur 15. júlí 2016 kl. 14:25

Sara Björk í heimsókn til knattspyrnuskóla Þróttar

Sara Björk Gunnarsdóttir, ein fremsta knattspyrnukona landsins, mætti í heimsókn á lokadegi knattspyrnuskóla Þróttar í Vogum í gær. Heimsóknin vakti mikla lukku enda gaf Sara sér góðan tíma til að spjalla við börnin á námskeiðinu. Öll fengu þau svo áritað plakat af kvennalandsliðinu og af Söru Björk.

Knattspyrnuskólinn hefur verið í gangi alla vikuna en lauk í gær og fengu allir verðlaunapening, boltamyndir, bol og var boðið í pítsuveislu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn