Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sara, Ingunn Embla og Elvar í A-landsliðinu
Efst: Sara Rún var ein af betri leikmönnum Íslandsmótsins í ár. Fyrir miðju: Ingunn Embla kom óvænt fram á sjónarsviðið á seinni hluta tímabils.
Miðvikudagur 22. maí 2013 kl. 07:15

Sara, Ingunn Embla og Elvar í A-landsliðinu

Smáþjóðaleikarnir á næsta leyti

Þjálfarar A-landsliðanna í körfubolta hafa valið þá 12 leikmenn sem munu leika fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum sem hefjast í 26. maí næstkomandi og fara fram í Lúxemborg. Suðurnesjamenn eiga fjölda fulltrúa sem verða með í för en að þessu sinni eru 12 leikmenn og þjálfarar í hópum karla og kvenna frá Suðurnesjum. Þar á meðal eru nýliðarnir frá Keflvíkingum, þær Sara Rún Hinriksdóttir og Ingunn Embla Kristínardóttir hjá kvennaliðinu og Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hjá körlunum.

Þeir leikmenn sem skipa landslið karla og kvenna eru eftirfarandi: Suðurnesjamenn eru feitletraðir.

Landslið kvenna:
Pálína Gunnlaugsdóttir · Keflavík
Sara Rún Hinriksdóttir · Keflavík
Ingunn Embla Kristínardóttir · Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir · Keflavík

Hildur Sigurðardóttir · Snæfell
Hildur Björg Kjartansdóttir · Snæfell
Kristrún Sigurjónsdóttir · Valur
Hallveig Jónsdóttir · Valur
Petrúnella Skúladóttir · Grindavík
Gunnhildur Gunnarsdóttir · Haukar
Helena Sverrisdóttir · Good Angels Kosice, Slóveníu
María Ben Erlingsdóttir · Saint Gratien, Frakklandi

Sverrir Þór Sverrisson – Þjálfari
Anna María Sveinsdóttir – Aðstoðarþjálfari

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Landslið karla:
Hörður Axel Vilhjálmsson · MBC, Þýskalandi     
Finnur Magnússon · KR
Brynjar Þór Björnsson · KR
Ægir Þór Steinarsson · Newberry  
Axel Kárason · Værlöse
Jóhann Árni Ólafsson · Grindavík          
Ragnar Nathanaelsson · Hamar
Elvar Már Friðriksson · Njarðvík
Justin Shouse · Stjarnan
Martin Hermannsson · KR 
Magnús Þór Gunnarsson · Keflavík
Jón Ólafur Jónsson · Snæfell

Pétur Már Sigurðsson – Þjálfari
Arnar Guðjónsson - Aðstoðarþjálfari

Sverrir Þór Sverrisson er þjálfari kvennaliðs Íslands.