Sandgerðingar rótburstaðir fyrir norðan
Njarðvíkingurinn Ragnar fór á kostum
Reynismenn fengu slæma útreið í 1. deild karla í körfubolta í kvöld þegar þeir heimsóttu Þórsara norðan heiða. Þórsarar unnu 76 stiga sigur gegn Sandgerðingum sem mættu aðeins með sex leikmenn til leiks. Reynismenn skoruðu aðeins 40 stig gegn 116 frá Akureyringum í leiknum.
Nokkrir Suðurnesjamenn leika með Þórsurum. Njarðvíkingurinn Ragnar Helgi Friðriksson fór mikinn hjá heimamönnum. Hann skoraði aðeins 4 stig en átti 14 stoðsendingar og stal 11 boltum, auk þess sem hann tók 7 fráköst.
Sandgerðingar áttu leik á föstudaginn og voru því þreyttir auk þess að vera fáir. Þar sem um frestaðan leik var að ræða sem kom upp með skömmum fyrirvara, komust ekki fleiri leikmenn þeirra norður. Þeir hafa nú tapað öllum átta leikjum sínum í deildinni.
Þór Ak.-Reynir Sandgerði 116-40 (34-6, 25-13, 24-15, 33-6)
Reynir Sandgerði: Róbert Ingi Arnarsson 12/4 fráköst, Brynjar Þór Guðnason 9/8 fráköst, Birkir Örn Skúlason 8, Garðar Gíslason 8/10 fráköst, Ágúst Einar Ágústsson 3/7 fráköst, Hinrik Albertsson 0.
Þór Ak.: Tryggvi Snær Hlinason 37/9 fráköst/5 varin skot, Sindri Davíðsson 19, Andrew Jay Lehman 13, Sturla Elvarsson 13/8 fráköst, Einar Ómar Eyjólfsson 8/5 fráköst, Svavar Sigurður Sigurðarson 8/9 fráköst, Danero Thomas 7, Ragnar Helgi Friðriksson 4/7 fráköst/14 stoðsendingar/11 stolnir, Elías Kristjánsson 4, Þröstur Leó Jóhannsson 3, Jón Ágúst Eyjólfsson 0/4 fráköst/5 stoðsendingar.