Sandgerðingar af fallsvæðinu
Reynismenn frá Sandgerði komu sér af fallsvæði 2. deildar með 1-0 sigri á KF á heimavelli sínum í gær. Það var Viktor Jónsson sem skoraði eina mark leiksins á 29. mínútu. Með sigrinum komust Sandgerðingar í 10. sæti fyrir ofan Völsung og Njarðvík sem sitja á botninum. Stöðuna í deildinni má sjá hér að neðan.