Sanders í sex leikja bann
David Sanders, leikmaður Tindastóls í körfuknattleik, var í dag dæmdur í 6 leikja keppnisbann fyrir að slá Sverri Þór Sverrisson í leik Keflavíkinga og Tindastóls á Sauðárkróki á laugardaginn. Þessi dómur er sá strangasti sem aganefnd KKÍ hefur gefið frá því að Ágúst Hilmar Dearborn hlaut sama dóm í leik fyrir Njarðvík haustið 2002.
Það kom þó ekki í veg fyrir að Sanders spilaði með sínum mönnum í leiknum í kvöld og þar sem hann skoraði 24 stig.