Samúel Kári leiðir U17 landslið Íslands
U17 landslið karla í fótbolta leikur annan leik sinn á Opna Norðurlandamótinu í dag og eru mótherjarnir U19 landslið Færeyinga, heimamanna, og fer leikurinn fram í Tóftum núna kl. 17:00 að íslenskum tíma. Gunnar Guðmundsson, þjálfari íslenska liðsins, hefur gert 7 breytingar á byrjunarliði Íslands frá tapleiknum gegn Svíum í gær, sem þýðir að allir þeir leikmenn sem ekki byrjuðu gegn Svíum byrja í dag. Fyrirliði liðsins er hinn 16 ára gamli Keflvíkingur Samúel Kári Friðjónsson en hann þykir mikið efni.
Hér má sjá byrjunarlið Íslands
Byrjunarlið Íslands (4-4-1-1)
Markvörður
Hlynur Örn Hlöðversson
Hægri bakvörður
Baldvin Ingimar Baldvinsson
Vinstri bakvörður
Gunnar Logi Gylfason
Miðverðir
Samúel Kári Friðjónsson (fyrirliði) og Gauti Gautason
Miðtengiliðir
Kári Pétursson og Alexander Helgi Sigurðsson
Hægri kantmaður
Eiríkur Ari Eiríksson
Vinstri kantmaður
Ásgeir Sigurgeirsson
Sóknartengiliður
Kristinn Skæringur Sigurjónsson
Framherji
Magnús Pétur Bjarnason