Samúel í draumaleik gegn Man. Utd.
-Dekkaði Lukaku í leik gegn Valerenga í Osló
„Leikurinn gegn Manchester United var mjög sérstök stund fyrir mig og okkur alla í liðinu. Að spila gegn frægasta knattspyrnuliði í heimi og heimsklassa leikmönnum er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi,“ sagði keflvíski atvinnuknattspyrnumaðurinn Samúel Friðjónsson sem fékk það hlutverk að gæta eins þekktasta knattspyrnumanns í heimi, Lukaku hjá Man. Utd. í leik liðanna á Ulleval leikvanginum í Osló í vikunni. Stórliðið vann með þremur mörkum gegn engu.
Keflvíkingurinn fékk það hlutverk að gæta Lukaku. „Þetta var tær snilld og tilfinningin mögnuð þegar maður var að ganga inn í klefa vitandi að maður var að fara að kljást við mörg af stærstu nöfnunum í enska boltanum. En þegar maður fer svo inn á völlinn verður maður að fókusera eins og í hverjum öðrum leik, ekki hugsa neitt öðruvísi. Ef maður er ekki með topp einbeitingu er manni refsað, ekki síst gegn svona leikmönnum,“ segir Samúel um þennan draumaleik sem hann lék en var hluti af undirbúningsleikjaplani Manchester United. Það var auðvitað fullt á leikvanginum í Osló og Samúel segir að stemmningin hafi verið mögnuð.
En þarna varstu kominn meðal stórstjarnanna. Það hefur verið gaman?
„Þetta var auðvitað skemmtilegt, að taka í höndina á Mourinho (þjálfara Man.Utd.) og leikmönnum liðsins og spila fyrir framan 30 þúsund manns. Það hafa verið að meðaltali um 10 til 13 þúsund á leikjunum okkar, svo þetta var aðeins öðruvísi og magnaðri upplifun,“ segir Samúel sem fékk það verkefni að gæta nýja framherja Man. Utd. Lukako. „Já, ég var að dekka Lukako og það gekk mjög vel en hann er frábær leikmaður og ég held að hann eigi eftir að gera góða hluti fyrir félagið. Annars fannst mér Marital standa sig best hjá Man. Utd. Hann er ótrúlegur leikmaður.“
Keflvíkingurinn kom til liðsins fyrr í sumar og er í skýjunum með allt hjá norska liðinu og að sér líði vel í Osló.
„Okkur hefur gengið vel á tímabilinu en verið óheppnir á köflum. Núna eigum við leik til góða og getum komið okkur upp í 4. sæti. Markmiðið okkar er að komast í Evrópudeildina og það er alveg raunhæft. Ég hef leikið tvo síðustu leiki og það gengur allt ótrúlega vel eftir langan og erfiðan tíma í meiðslum.“
Hvernig er þetta hjá norska liðinu í samanburði við þar sem þú varst síðast, hjá Reading í Englandi?
„Reading er mun stærra félag og sviðið í Englandi auðvitað stærra. Getumunurinn þó ekki svo mikill. En það er jú draumur flestra að spila í Englandi.“
Og þinn líka auðvitað?
„Maður sér eftir svona leik að það er allt hægt. Mitt persónulega markmið er að spila í einhverjum af fimm stærstu deildunum í heimi. Englandi eða La liga á Spáni sem ég er mjög spenntur fyrir. Ég veit að það mun rætast en til þess þarf ég að halda áfram á sömu braut og gefa enn meira í,“ segir Keflvíkingurinn ungi sem er ekki sá fyrsti hjá Valgerenga því Elías Már Ómarsson lék þar ekki alls fyrir löngu.
Samúel og Lukaku í baráttu um boltann í leiknum.