HSS
HSS

Íþróttir

Samstarfssamningur KSÍ og SpKef undirritaður
Föstudagur 26. nóvember 2010 kl. 13:21

Samstarfssamningur KSÍ og SpKef undirritaður

- Gildir árin 2011 til 2013

Knattspyrnusamband Íslands og Spkef Sparisjóðurinn í Keflavík undirrituðu á föstudag samkomulag um samstarf til næstu þriggja ára (2011-2013). Geir Þorsteinsson formaður KSÍ og Einar Hannesson Sparisjóðsstjóri undirrituðu samninginn, en í honum felst stuðningur Sparisjóðsins við starfsemi KSÍ á öllum sviðum og nær samningurinn m.a. til allra landsliða Íslands af báðum kynjum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Samningurinn er liður í endurskipulagningu á samfélagsstuðningi Sparisjóðsins og ber vitni um vilja bankans til að styðja knattspyrnuhreyfinguna. Þá mun samstarfið einnig styrkja innviði sparisjóðsins.


Sparisjóðurinn í Keflavík verður því í lykilhlutverki sem einn af aðalsamstarfsaðilum KSÍ næstu þrjú árin - Alltaf í boltanum með KSÍ.