Samstarfssamningur Garðs og Víðis
Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Jón Ragnar Ástþórsson formaður Knattspyrnufélagsins Víðis undirrituðu undir lok síðasta árs samstarfssamning sveitarfélagsins og Víðis. Þetta kemur fram á vefsíðu sveitarfélagsins.
Samningurinn tekur yfir:
• Verkefni sem Víðir tekur að sér fyrir Garð og sérstakar greiðslur fyrir þau verkefni.
• Aðstöðu sem Sveitarfélagið Garður veitir Víði aðgang að.
• Beina fjárstyrki sem Sveitarfélagið Garður leggur til starfsemi Víðis.
Samningurinn gildir frá 1. janúar 2015 til 31. desember 2018. Í honum er fjallað um skuldbindingar sem Víðir undirgengst, m.a. varðandi forvarnir, jafnrétti, menntun þjálfara og kynningarstarf. Verkefni sem Víðir tekur að sér fyrir Sveitarfélagið Garð og fær sérstakar greiðslur fyrir eru undirbúningur og framkvæmd Sólseturshátíðar og umsjón og umhirða knattspyrnuvallarsvæða.
Samkvæmt samningnum fær Víðir afnot af samkomuhúsi vegna tiltekinna viðburða, ásamt afnotum af íþróttamiðstöð til æfinga og móta. Jafnframt fær Víðir afnot af íþróttamiðstöð í janúarmánuði til að halda árlegt þorrablót með Björgunarsveitinni Ægi.
Sveitarfélagið Garður lýsir ánægju með farsælt samstarf sveitarfélagsins og Víðis undanfarin ár og þakkar framlag félagsins til æskulýðs-og félagsstarfsemi í Garði. Sveitarfélagið væntir þess að nýr samstarfssamningur efli starfsemi Víðis í þágu íbúa Garðs, ekki síst barna og ungmenna.
Jón Ragnar Ástþórsson, formaður Víðis, Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Guðbrandur J. Stefánsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.