Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Íþróttir

Miðvikudagur 20. febrúar 2002 kl. 00:06

Samningur Landsbankans og Keflavíkurkörfunnar framlengdur

Landsbanki Íslands og Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hafa gert nýjan tveggja ára samstarfs- og styrktarsamning en síðustu níu ár hafa þessir aðilar unnið saman á þessu sviði. Hrannar Hólm, formaður deildarinnar segir þennan samning mikilvægan fyrir deildina. „Farsælt samstarf við Landsbankann hefur verið mikil kjölfesta fyrir allt starf deildarinnar.“
Jóhanna E. Óskarsdóttir, Útibússtjóri Landsbankans sagði við þetta tækifæri að bankinn væri mjög ánægður með samstarfið við körfuknattleiksdeildina. „Við í Landsbankanum teljum það mikilvægt verkefni að leggja okkar af mörkum til stuðnings íþrótta- og æskulýðsstarfssemi á Suðurnesjum og er þessi samningur liður í því“.
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25