Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Íþróttir

Rúnar áfram með Íslandsmeistara Njarðvíkur
Rúnar Ingi lyftir Íslandsmeistarabikarnum eftir að Njarðvík lagði Hauka í oddaleik um titilinn. VF-mynd: JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 1. júní 2022 kl. 08:30

Rúnar áfram með Íslandsmeistara Njarðvíkur

Rúnar Ingi Erlingsson skrifaði í gær undir nýjan tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur um að stýra Íslandsmeisturum kvenna næstu tvö tímabil.

Rúnar gerðir liðið að Íslandsmeisturum á nýafstaðinni leiktíð eftir sigur á Haukum í úrslitaseríu Subway-deildar kvenna. Kristín Örlygsdóttir, formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, sagði við þetta tilefni að það væri mikið fagnaðarefni að hafa Rúnar Inga áfram við stjórnartaumana. „Rúnar gerði frábæra hluti með liðið í vetur og sýndi þar og sannaði hve öflugur þjálfari hann er. Við bindum miklar vonir við samstarfið við Rúnar næstu árin og ætlum okkur áframhaldandi góða hluti með kvennaliðið okkar.”

Kristín Örlygsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar UMFN, og Rúnar Ingi handsala samninginn. Mynd: JBÓ

Sjálfur hefur Rúnar ekki setið auðum höndum enda von um talsverðar breytingar á liðinu en eins og þegar hefur komið fram eru Helena Rafnsdóttir og Vilborg Jónsdóttir báðar á förum í háskólanám til Bandaríkjanna. Við ræddum stuttlega við Rúnar við gerð nýja samningsins og þar stóð ekki á svörunum þegar við spurðum hann hvenær undirbúningur fyrir næstu leiktíð hæfis: „strax á morgun, 1. júní.”

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Viðtal sem umfn.is tók við Rúnar Inga rétt eftir undirskrift er hér að neðan.