Rugby í Vogum gegn frönskum sjóliðum í dag
	Landslið Íslands í rugby mætir í C deild Evrópumótsins í rugby í Zenica í Bosníu-Hersegóvínu helgina 6-7. Júní. Fyrir aðildarlönd alþjóða rugby sambandsins er þetta mót lykilinn að Ólympíuleikunum í Ríó og því viðbúið að allt kapp verði lagt í sigur.
	
	Upphitun fyrir mótið mun eiga sér stað á frábærri aðstöðu Þrótta í Vogum á Vatnsleysuströnd í dag, föstudag klukkan 18:00.
	
	Franskir sjóliðar af freigátunni Larouche Tréville, landsliðið auk annarra leikmanna hér á landi munu leika nokkra 7 manna rugby leiki – sem er sama útgáfa og spiluð er á Evrópumótinu, einnig nefnt Ólympískt rugby. Allir eru velkomnir á völlinn að kynna sér rugby íþróttina og hvetja okkar menn til dáða.
	 


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				