Íþróttir

Röðin breytist á toppnum
Njarðvíkingar eru á toppnum ásamt Stjörnunni og Stólunum. Keflvíkingar geta komist upp á hlið granna sinna í kvöld.
Fimmtudagur 25. október 2018 kl. 09:50

Röðin breytist á toppnum

Fjögur efstu liðin í Domino’s deild karla í körfubolta eigast við innbyrðis í kvöld. Keflvíkingar fá Stjörnuna í heimsókn í Blue-höllina á meðan Njarðvíkingar ferðast norður og mæta Tindastólsmönnum. Njarðvík, Tindastóll og Stjarnan hafa fullt hús stiga í þremur efstu sætunum eftir þrjár umferðir og því mun röðin á toppnum breyst eftir leiki kvöldsins. Keflvíkingar eru í fjórða sæti með fjögur stig.

Báða leikina má sjá í beinni, annars vegar á Stöð 2 sport (Keflavík-Stjarnan) og svo á Tindastóll tv.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024