Reynismenn unnu manni færri
Reynismenn unnu góðan sigur á útivelli gegn ÍH í gær. Fyrirliðanum Benedikt Jónssyni var vikið af velli í stöðunni 0:0 (22') og Reynismenn því einum manni færri meginhluta leiksins.
Þrátt fyrir að vera manni færri voru það Reynismenn sem komust yfir með marki Sigurðar Orra Ingimarssonar í þann mund sem fyrri hálfleik var að ljúka (45').
Reynismenn voru því í góðri stöðu þegar seinni hálfleikur fór af stað en þegar rúmar tíu mínútur lifðu leiks jafnaði ÍH (79').
Það var hins vegar hinn gamalreyndi Strahinja Pacic sem reyndist bjargvættur Reynismanna þegar hann skoraði sigurmarið á 85. mínútu.
Með sigrinum hafa Reynismenn nú sex stiga forskoti á toppi deildarinnar en Kormákur/Hvöt og Víðir, sem eru í öðru og þriðja sæti, hafa leikið einu leik færri. Umferðin klárast í kvöld og þá taka Víðismenn á móti Kára, leikurinn hefst kl. 18:00.