Bygg
Bygg

Íþróttir

Reynismenn tryggja sæti í 2. deild að ári
Miðvikudagur 7. september 2005 kl. 01:00

Reynismenn tryggja sæti í 2. deild að ári

Liðsmenn Reynis frá Sandgerði ráku svo sannarlega af sér slyðruorð síðustu ára þegar þeir lögðu Gróttu í seinni undanúrslitaleik liðanna í 3. deild karla í knattspyrnu í dag.
Með 1-4 útisigri komust þeir í úrslitaleikinn og tryggðu sér sæti í 2. deild á næsta ári.

Útlitið var ekki bjart fyrir leikinn því Grótta hafði unnið fyrri leikinn á Sandgerðisvelli, 4-5, og enn syrti í álinn þegar Gróttumenn komust yfir 1-0 snemma í leiknum í dag.

Reynismenn sýndu hins vegar mátt sinn og megin með því að ná að jafna metin og komast loks yfir áður en flautað var til hálfleiks. Þar voru að verki þeir Adolf Sveinsson og Guðmundur Gunnarsson.

Eftir það var kominn hugur í Sandgerðinga sem bættu tveimur mörkum við i seinni hálfleik og voru þar að verki þeir Adolf og Ólafur Ívar Jónsson sem tryggði glæsilegan sigur og farmiða upp í 2. deild að ári með marki úr vítaspyrnu.

Reynir hefur leikið í 3. deild frá því að þeir féllu úr 2. deild haustið 1999 en hafa oft verið nálægt því að komast upp aftur. Skemmst er að minnast þess þegar þeir komust í undanúrslit í fyrra en féllu þar úr leik.

„Þetta var mikill baráttusigur,“ sagði Gunnar Oddsson þjálfari í samtali við Víkurfréttir. Hann bætti því við að þeir hefðu þurft að hafa fyrir hlutunum í allt sumar, en komist yfir hverja raun. „Við lentum í basli í riðlakeppninni og aftur í 8-liða úrlitum og enn aftur í undanúrslitum þannig að þetta er búin að vera mikil barátta. En þetta snýst einmitt um hugarfar. Það er engin uppgjöf!“

Gunnar segist ekki kvíða úrslitaleiknum. „ Munurinn á liðnu núna og síðustu ár er að við erum komnir með reynslu í liðið. Við erum með góða blöndu af heimastrákum og reyndari leikmönnum og ætlum okkur að klára þetta dæmi. Það er deildarmeistaratitill í boði og við komum inn í þann leik eins og alla, til að vinna.“
Bílakjarninn
Bílakjarninn