Reynismenn stóðu sig í fyrsta fjölliðamótinu
Nú um helgina fór fram fjölliðamót 7. flokks í körfubolta í Íþróttamiðstöðinni í Sandgerði. Allir þeir sem léku fyrir Reynis hönd á mótinu voru að spila í fyrsta skipti í Íslandsmóti. Reynismenn höfnuðu í 3. sæti á mótinu og gáfu hinum liðunum ekkert eftir. Nánar má lesa um mótið á heimasíðu Reynis, en þar má sjá skemmtilegar myndir af körfuboltaköppum framtíðarinnar.