HSS
HSS

Íþróttir

Reynismenn steinlágu í fyrsta leik
Laugardagur 13. október 2012 kl. 16:38

Reynismenn steinlágu í fyrsta leik

Reynismenn fengu skell í fyrsta heimaleik þeirra í 1. deild karla í körfubolta þegar Valsmenn komu í heimsókn. Lokatölur urðu 60-95 en eftir fyrsta leikhluta var staðan 7-29 fyrir Valsmenn og staðan strax orðin erfið fyrir heimamenn. Annar leikhluti var öllu jafnari en hann fór 20-20 og staðan var 27-49 í hálfleik.

Sandgerðingar náðu aldrei að jafna sig eftir afleita byrjun en Valsmenn gerðu algerlega út um leikinn í byrjun seinni hálfleiks. Munurinn varð 35 stig að lokum og ljóst að Valsmenn verða sterkir í 1. deildinni í vetur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hjá Reyni var Ragnar Ólafsson sprækastur en hann skoraði 13 stig og tók 8 fráköst.

Tölfræði frá leiknum.