Reynismenn sigruðu Njarðvíkinga
Reynismenn sóttu sigur á Njarðtaksvelli gegn grönnum sínum í Njarðvík þegar liðin áttust við í 2. deildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 1-3 en Sandgerðingar voru mun sprækari í leiknum.
Sandgerðingar voru beittir allt frá upphafi og skoruðu fyrsta mark leiksins á 17. mínútu, en þar var á ferðinni Davíð Sigurðsson. Þegar hálftími var svo liðinn af leiknum jók Árni Björn Höskuldssson forystuna fyrir gestina og þannig var staðan í hálfleik.
Reynismenn náðu svo 0-3 forystu eftir að Þorsteinn Þorsteinsson nýtti sér varnarmistök Njarðvíkinga eftir 55 mínútur. Það var svo sárabót fyrir Njarðvíkinga þegar Brynjar Freyr Garðarsson minnkaði muninn skömmu síðar en því miður náðu heimamenn ekki að ógna marki Sandgerðinga frekar. Sanngjarn sigur Reynismanna í þessum fyrsta nágrannaslag sumarsins.