Íþróttir

Reynismenn sáu á eftir dýrmætum stigum
Jóhann Magni var á skotskónum í gær
Föstudagur 28. ágúst 2015 kl. 14:00

Reynismenn sáu á eftir dýrmætum stigum

Völsungur getur lyft sér í annað sætið með sigri á Víði um helgina

Reynir Sandgerði gerði 2-2 jafntefli við Kára á K&G vellinum í 3. deild karla en leikið var í  Sandgerði í gærkvöldi. Heimamenn glotruðu niður tveggja marka forystu og þurftu að sjá á eftir tveimur dýrmætum stigum í toppbaráttunni.

Reynismenn komust í 2-0, fyrra markið gerði markarefurinn Jóhann Magni Jóhannsson á 12. mínútu og hinn síungi Scott Ramsey bætti við öðru marki á þeirri 55.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Akurnesingar neituðu hins vegar að leggja árar í bát og minnkuðu munin á 68. mínútu og það var svo á 86. mínútu sem að Kári jafnaði metin og tryggði sér jafntefli.

Reynismenn eru í mikilli baráttu við lið Völsungs um laust sæti í 2. deild en með jafnteflinu í gær gefa Reynismenn Húsvíkingum færi á því að komast upp fyrir sig í töflunni, en Völsungur á leik til góða á Reyni sem er tveimur stigum fyrir ofan.

Víðir í Garði getur orðið mikill örlagavaldur um það hvernig fer í baráttu Reynis og Völsungs, en Víðismenn mæta þessum tveimur liðum í næstu umferðum en Víðismenn hafa ekki tapað leik síðan snemma í júlí.

Leikur Víðis og Völsungs fer fram á Nesfisksvellinum í Garði á laugardaginn kl. 14.