Bygg
Bygg

Íþróttir

Reynismenn mæta Berserkjum í kvöld
Pétur Jaidee hefur verið iðinn við kolann í markaskorun fyrir Reynismenn það sem af er sumri
Föstudagur 17. júlí 2015 kl. 14:26

Reynismenn mæta Berserkjum í kvöld

Scott Ramsey í liði Reynismanna

Reynir Sandgerði getur klifrað upp í 2. sæti 3. deildar karla sigri liðið Berserki í kvöld á K&G vellinum í Sandgerði. Leikurinn verður fyrsti leikur Scott Ramsey með Reynismönnum eftir að hafa kvatt Grindavík í vikunni.

Heimamenn eru sem stendur í 3. sæti deildarinnar með 19 stig, eins og lið Kára í 2. sæti en Akurnesingar eiga ekki leik fyrr en á morgunn og geta Sandgerðingar því tímabundið tyllt sér í 2. sætið sem gefur sæti í 2. deild að ári. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Berserkir eru aftur á móti í botnbaráttu í deildinni og sitja í 9. og næstneðsta sætinu með 6 stig og þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að koma sér úr fallsæti.

Leikurinn verður flautaður á kl. 20