Reynismenn héldu loks hreinu
Reynismenn halda áfram að skora en þeir sigruðu botnlið Árborgar 3-0 í 2. deildinni í knattspyrnu í gær. Guðmundur Gísli Gunnarsson skoraði tvö markanna og Jóhann Magni Jóhannsson hélt uppteknum hætti og skoraði eitt.
Eftir rúmlega hálftíma leik kom Guðmundur Gísli Reynismönnum yfir með snyrtilegri afgreiðslu eftir laglega sendingu frá Birki Frey Sigurðssyni. Þannig var staðan í hálfleik 1-0 fyrir heimamenn.
Í síðari hálfleik byrjuði heimamenn af krafti og voru nálægt því að setja fleiri mörg strax í upphafi. Það gerðist hins vegar eftir rúmar 60 mínútur að Pétur Þór Jadiee prjónaði sig í gegn og fann félaga sinn Jóhann Magna sem skoraði en hann hefur skorað 5 mörk í 5 leikjum með Reyni í sumar. Guðmundur Gísli skoraði svo sitt annað mark skömmu síðar er hann fylgdi eftir sínu eigin skoti og tryggði Reyni öruggan 3-0 sigur.
Þetta var í fyrsta skipti í sumar sem Reynismenn halda hreinu og með þessum sigri eru Reynismenn í 2. sæti deildarinnar eftir 7 leiki.
Staðan:
VF-Myndir Eyþór Sæmundsson: Að ofan skorar Guðmundur Gísli Gunnarsson fyrra mark sitt og á myndinni hægra megin má sjá Jóhann Magna Jóhannsson