Bygg
Bygg

Íþróttir

Reynismenn byrjuðu með sigri í 2. deild
Mánudagur 6. október 2014 kl. 09:45

Reynismenn byrjuðu með sigri í 2. deild

Reynismenn hófu leik sinn í 2. deildinni í körfuknattleik karla í gær með öruggum sigri á Aftureldingu. Leikið var í Mosfellsbæ þar sem lokatölur urðu 49-80 fyrir Sandgerðinga. Í hálfleik leiddu Reynismenn 32-36, en þeir gerðu út um leikinn í þriðja leikhluta. Eftir þann leikhluta var staðan 38-55. Eftirleikurinn var svo auðveldur fyrir baráttuglaða Reynismenn. Nánar má lesa um leikinn á heimasíðu Reynis.

Stigaskor Reynis:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

    Alfreð Elíasson 28 stig
    Rúnar Ágúst Pálsson 14 stig
    Egill Birgisson 14 Stig
    Ólafur Geir Jónsson 13 stig
    Hinrik Albertsson 6stig
    Einar Örn Einarsson 4 stig
    Elvar Þór Sigurjonsson 1 stig