Bygg
Bygg

Íþróttir

Reynir vann sigur á Hamri
Föstudagur 9. júlí 2004 kl. 11:28

Reynir vann sigur á Hamri

Reynir sótti þrjú stig í Hveragerði í gærkvöldi með því að sigra Hamar 2-0.

Fyrra mark Reynis kom eftir 12 mínútna leik þegar Guðmundur G. Gunnarsson skoraði eftir sendingu frá Hafsteini Helgasyni. Seinna markið kom 12 mínútum fyrir leikslok þegar Sverrir Þór Sverrisson skoraði með skoti af stuttu færi.

Reynismenn fengu gullið tækifæri til að bæta þriðja markinu við þegar Björn I. Björnsson skaut fram hjá úr víti á 85. mínútu.

Niðurstaðan var sanngjarn sigur Reynis, en liðið er nú komið í annað sæti í B-riðli 3. deildar með 14 stig eftir 6 leiki.

Næsti leikur Reynismanna er við Drang í Kópavogi mánudaginn 12. júlí kl. 20.

Bílakjarninn
Bílakjarninn