Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Reynir Sandgerði, Víðir Garði og Þróttur Vogum sameinast
Sólmundur Einvarðsson frá Víði, Marteinn Ægisson frá Þrótti og Sigursveinn B. Jónsson Reyni Sandgerði.
Mánudagur 1. apríl 2019 kl. 08:44

Reynir Sandgerði, Víðir Garði og Þróttur Vogum sameinast

Reynir Sandgerði, Víðir Garði og Þróttur Vogum munu tefla fram sameiginlegu liði í 2. deild karla í knattspyrnu á komandi keppnistímabili.
 
Reynir Sandgerði, Víðir Garði og Þróttur Vogum hafa ákveðið að félögin muni senda sameiginlegt lið til keppni í 2. deild karla í knattspyrnu næsta sumar. 
 
Yfirlýsingu frá félögum: 
 
„Þetta er niðurstaða eftir um tveggja mánaða viðræður á milli félaganna. Stjórnir allra félaga eru sannfærðar um að þetta sé rökrétt skref, þarna sé verið að tryggja að hægt sé að efla alla umgjörð í kringum knattspyrnuna og markmiðið verður að búa til lið í efstu deild á fáeinum árum og verðandi stórveldi hérlendis.“
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024