Reynir Sandgerði taplausir í 3. deild
Reynir sigraði Bolungarvík, 2-6, í 3. deild karla(b-riðiill) í knattspyrnu á laugardag. Guðmundur Gísli Gunnarsson skoraði tvö mörk, Marteinn Guðjónsson skoraði tvö og þeir Eysteinn Már Guðvarðsson og Vilhjálmur Skúlason sitt markið hvor. Á sunnudag gerðu þeir svo, 2-2, jafntefli gegn BÍ á Torfnesvelli þar sem Pálmar Guðmundsson skoraði bæði mörkin.
Reynir eru efstir í B-riðlinum með 10 stig eftir fjóra leiki og hafa ekki tapað leik.
Reynir eru efstir í B-riðlinum með 10 stig eftir fjóra leiki og hafa ekki tapað leik.