Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Reynir prúðasta liðið í 2. deild
Miðvikudagur 15. febrúar 2012 kl. 11:09

Reynir prúðasta liðið í 2. deild



Reynir Sandgerði fékkviðurkenningu fyrir prúðmannlegan leik í 2. deild karla í knattspyrnu á 66. ársþingi KSÍ sem haldið er á Hilton Nordica Hótel. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaga viðurkenninguna síðastliðna helgi. Valur, ÍBV og BÍ/Bolungarvík fengu Dragostytturnar en stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna. Þá eru veittar sérstakar viðurkenningar í 2. og 3. deild karla og er stuðst við sömu forsendur og í efstu tveimur deildunum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024