Reynir óheppnir með jafntefli
Reynismenn voru óheppnir að bera ekki meira úr býtum þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við lið Fjarðabyggðar í undanúrslitum 3. deildar karla í dag.
Reynismenn, sem voru á heimavelli réðu lögum og lofum í leiknum og var það einungis markvörður Austfirðinganna sem kom í veg fyrir tap með stórleik.
Liðin mætast að öðru sinni á Eskifirði á þriðjudaginn og metur Gunnar Oddsson, þjálfari Reynis, möguleika sinna manna nokkuð góða. „Nú höfum við fært pressuna á þá þar sem þeir mega ekki fá mark á sig. Þar að auki hefur okkur gengið vel á útivöllum í sumar og mér líst vel á okkar möguleika.“