Reynir og Njarðvík með sigra
Kristinn Björnsson tryggði Njarðvíkingum áframhaldandi veru á toppi 2. deildar karla í knattspyrnu er hann gerði eina mark Njarðvíkinga sem heimsóttu KS/Leiftur í gær. Lokatölur leiksins voru 1-0 Njarðvík í vil og gerði Kristinn markið á 70. mínútu leiksins. Njarðvíkingar eru því enn á toppi 2. deildar með 27 stig og hafa enn ekki tapað leik í deildinni.
Reynir Sandgerði burstaði botnlið Sindra 6-0 þar sem Adolf Sveinsson fór á kostum og gerði þrjú mörk í leiknum. Hafsteinn Friðriksson kom Reyni í 1-0 með vítaspyrnu, Adolf Sveinsson gerði annað og þriðja mark Sandgerðinga og Guðmundur G. Gunnarsson breytti stöðunni í 4-0. Adolf var svo aftur á ferðinni þegar Sandgerðingar settu inn sitt fimmta mark en Bjarki Dagsson rak smiðshöggið og gerði sjötta mark Reynis. Sandgerðingar eru enn í 3. sæti deildarinnar með 22 stig en Fjarðarbyggð er skammt á hæla Njarðvíkinga með 25 stig, tveimur stigum á eftir Njarðvík.
VF-mynd/ HBB - Adolf Sveinsson gerir hér mark á Sandgerðisvelli fyrr í sumar.