Reynir í annað sætið
Reynir vann 2-1 sigur á Drangi á Smárahvammsvelli í Kópavogi í gærkvöldi.
Eftir 20 mínútna leik var staðan orðin 2-0 fyrir Reyni og yfirburðirnir slíkir að áhorfendur reiknuðu jafnvel með tveggja stafa tölu á markatöflunni. Hafsteinn Þór Friðriksson kom Reynismönnum yfir strax í upphafi leiks og Guðmundur G. Gunnarsson bætti öðru marki við eftir gott gegnumbrot hjá Gísla Þór Þórarinssyni.
Þegar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður var sem Reynisliðið væri tekið úr sambandi og það komst ekki aftur í gang. Á 60. mínútu minnkaði Drangur muninn þegar Kjartan Atli Kjartansson skoraði úr víti, sem var dæmt eftir samstuð í vítateig Reynis.
Korteri fyrir leikslok fékk Reynismaðurinn Ari Gylfason rauða spjaldið fyrir að sparka í átt að leikmanni Drangs eftir að boltinn var úr leik. Á lokamínútunni munaði litlu að heimamenn næðu að jafna þegar Eyþór Örn Haraldsson í marki Reynis náði ekki fyrirgjöf og bjargað var á línu. Áður höfðu þó Guðmundur G. Gunnarsson, Sverrir Þór Sverrisson og Hafsteinn Helgason allir fengið góð færi til að auka muninn fyrir Reyni.
Sigur Reynismanna kemur þeim í annað sæti B-riðils 3. deildar. Næsti leikur liðsins er við topplið ÍH í Hafnarfirði fimmtudaginn 22. júlí. Sigur í þeim leik kemur Reyni í efsta sæti riðilsins.
ÓÞÓ