Reynir í 5. sæti 3. deildar
Reynir og Álftanes skildu jöfn í markalausum leik í 3. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu karla á föstudaginn. Leikið var á Europcarvellinum í Sandgerði.
Þegar átta umferðir hafa verið leiknar í 3. deildinni er Reynir í fimmta sæti með 12 stig. Liðið hefur í síðustu fimm leikjum unnið tvo leiki, gert tvö jafntefli og tapað einni viðureign.
Reynir leikur næst gegn Augnabliki á útivelli á miðvikudagskvöld.