Bygg
Bygg

Íþróttir

Reynir fær botnliðið í heimsókn
Miðvikudagur 28. júlí 2004 kl. 12:57

Reynir fær botnliðið í heimsókn

Í kvöld taka Reynismenn á móti botnliði Ægis í 3. deild karla. Leikurinn hefst kl. 20.00 á Sandgerðisvelli og munu heimamenn tefla fram nýjum leikmanni. Varnarmaðurinn knái, Hjörtur Fjeldsted, hefur gengið til liðs við Reyni frá Keflavík og mun eflaust styrkja Sandgerðinga í komandi baráttu. Hjörtur á að baki 63 leiki í meistaraflokki Keflavíkur í deild og bikar.

Liðin mættust síðast í Þorlákshöfn þar sem Sandgerðingar fóru með 2-4 sigur af hólmi. Með sigri í kvöld geta Reynismenn komist á topp deildarinnar.

Annar leikur er í kvöld þar sem Víðismenn fara norður á Sauðárkrók og spila gegn Tindastóli kl. 20.00. Víðir er í áttunda sæti 2. deildar með 11 stig, einu stigi fyrir ofan Tindastól. Síðast þegar liðin áttust við skildu þau jöfn 2-2 í Garðinum.

VF-mynd/ úr safni

Bílakjarninn
Bílakjarninn