Reynir aftur á toppinn
Reynismenn endurheimtu efsta sætið í B-riðli 3. deildar í gær með 5-2 sigri á Ægi í leik þar sem rigningin var í aðalhlutverki.
Sandgerðingarnir byrjuðu af krafti og Georg Birgisson kom þeim yfir strax á 8. mínútu með skoti fyrir utan teig. Á 14. mínútu juku þeir við forystuna þegar Guðmundur G. Gunnarsson skoraði beint úr horni. Þremur mínútum síðar komust gestirnir í fyrsta skipti inn í teiginn hjá Reyni og uppskáru víti, það fyrsta af fjórum í leiknum, sem Guðni Þorvaldsson skoraði örugglega úr. Það sem eftir lifði af fyrri hálfleiknum sóttu Reynismenn, en náðu ekki að skora þrátt fyrir nokkur færi.
Það voru einungis 5 mínútur liðnar af seinni hálfleiknum þegar Sveinn Vilhjálmsson kom Reyni í 3-1 með góðu skoti. Á 63. mínútu juku Sandgerðingarnir enn við forystuna þegar Gísli Þór Þórarinsson sendi fastan jarðarbolta inn í vítateiginn og náði Hafsteinn I. Rúnarsson að setja tána í boltann og koma honum í netið hjá Ægi. Þegar 20 mínútur voru til leiksloka fengu Reynismenn víti sem Hafsetinn R. Helgason tók. Hann skaut knettinum í stöng og náði ekki að auka við forystu Reynis. Gestirnir fengu sitt annað víti þegar Gísli Þór braut á leikmanni Ægis inn í teig. Guðni Þorvaldsson, sem var langbesti leikmaður Ægis, skoraði örugglega úr vítinu sitt annað mark og breytti stöðunni í 4-2. Tíu mínútum síðar juku Reynismenn enn forystuna þegar Georg Birgisson skoraði sitt annað mark úr fjórðu vítaspyrnu leiksins. Reynir fékk ótal færi til að skora fleiri mörk í seinni hálfleiknum, en inn vildi boltinn ekki.
Næsti leikur Reynis er 7. ágúst gegn B.Í. á Ísafirði og sigur í þeim leik tryggir Sandgerðingunum efsta sætið í riðlinum þrátt fyrir að þá eigi þeir enn tvo leiki eftir.
Mynd úr safni. Texti: ÓÞÓ