Reynir áfram í VISA-bikarnum - Njarðvík úr leik
Reynir frá Sandgerði komst upp úr 32ja liða úrslitum VISA-bikarkeppni karla í knattspyrnu með 2-1 sigri á KV á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði í gær. Tomasz Luba skoraði bæði mörk Reynis, en sigurmarkið kom á lokaandartökum leiksins. Þetta var síðasti leikur Reynismanna á gamla vellinum en á sunnudag verður nýja stúkan vígð í deildarleik gegn Tindastóli.
Á meðan féll Njarðvík úr leik eftir tap gegn Fram á Laugardalsvelli. Þeir fengu óskabyrjun þegar Rafn Markús Vilbergsson skoraði með stuttu skoti úr teignum eftir snarpa skyndisókn á 16. mínútu. Framarar jöfnuðu hins vegar leikinn fyrir hálfleik og skoruðu sigurmarkið á 70. mínútu.
Í kvöld lýkur 32ja liða úrslitunum þar sem mörg Suðurnesjalið verða í eldlínunni. Víðir tekur á móti Þrótti R., Grindavík á móti ÍA og Keflavík á móti Einherja. Tveir fyrrnefndu leikirnir hefjast kl. 19:15 en leikurinn í Keflavík hefst kl. 20.
Mynd: Jón Örvar/Reynir.is - Sigurmarkinu fagnað á Sparisjóðsvellinum