Bygg
Bygg

Íþróttir

Reynir áfram: Grindavík og Njarðvík leika í kvöld
Þriðjudagur 12. júní 2007 kl. 09:32

Reynir áfram: Grindavík og Njarðvík leika í kvöld

Keppni í 3. umferð VISA bikars karla í knattspyrnu hófst í gær með fjórum leikjum og náðu Sandgerðingar að tryggja sér sæti í fjórðu umferðinni með 2-1 sigri á Gróttu. Guðmundur Gísli Gunnarsson gerði bæði mörk Sandgerðinga í leiknum en sigurmarkið kom á 86. mínútu leiksins.

 

Sex leikir fara fram í kvöld og mæta Njarðvíkingar Fjölni á Fjölnisvelli og Grindavík heimsækir ÍR á ÍR-völl. Báðir leikirnir hefjast kl. 20:00.

 

Aðrir leikir kvöldsins í bikarnum:

 

Höttur-Fjarðabyggð

Leiknir R.-Selfoss

Víkingur Ó.-Haukar

Þróttur R.-Ýmir

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn