Reynir á toppinn
Reynir úr Sandgerði komst á toppinn í 1. deild karla í körfuknattleik um helgina eftir sigur gegn Selfoss/Laugdælir, 82:73. Sævar Garðarson sem nýlega fékk leikheimild með liðinu eftir að hafa hætt með Njarðvík lék vel og skoraði 19 stig. Jóhannes Kristbjörnsson átti einnig góðan leik og setti niður 14 stig og tók 10 fráköst.Eins og áður sagði eru Reynismenn í efsta sæti deildarinnar með 10 stig ásamt Þór Þorlákshöfn og KFÍ.