Reykjanesgönguferð yfir jarðhitasvæðið við Sandfell
Í dag, miðvikudaginn 10. júlí bjóða Reykjanesgönguferðir upp á gönguferð á Núpshlíðarháls. Gengið verður frá stóra Hamradal yfir jarðhitasvæði við Sandfell.
Leiðsögumaður er Rannveig Garðarsdóttir og gestaleiðsögumaður verður Guðmundur Ómar Friðleifsson, yfirjarðfræðingur HS Orku hf.
ATH breytt tímasetning. Lagt verður af stað kl 17:00
Gangan er við allra hæfi sem treysta sér að ganga svolítið uppí móti, gangan tekur 3 - 4 klst.
Kostnaður kr. 1500, frítt fyrir 12 ára og yngri.
Allir velkomnir.