HSS
HSS

Íþróttir

Miðvikudagur 23. febrúar 2000 kl. 14:55

Reykjanesbær gerir vel við íþróttafólk

Styrkir Reykjanesbæjar til íþróttafélaga vegna landsliðsfólks námu um 1 millj. kr. á árinu 1999, en aðrir styrkir s.s. árlegt framlag, þjálfaranámskeið o.fl. voru tæpar 3 millj. kr. Sértakt framlag var veitt vegna Evrópukeppni ÍRB liðsins í körfuknattleik karla og voru það um 2 millj.kr. Styrkur vegna íþróttamóts unglinga í Trollhattan nam 600 þús. kr. Ólafur Thordesen (J) sagði á bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar í síðustu viku, að bærinn hefði gert mjög vel við íþróttahreyfinguna, sérstaklega í samanburði við önnur bæjarfélög, og fagnaði hann því.
Bílakjarninn
Bílakjarninn