Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Reykjanes Maraþon fyrir alla fjölskylduna
Miðvikudagur 27. ágúst 2014 kl. 16:43

Reykjanes Maraþon fyrir alla fjölskylduna

Reykjanes Maraþon fer fram Miðvikudaginn 3. september nk. en hlaupið er árlegur viðburður sem fram fer í tengslum við Ljósanótt í Reykjanesbæ, sem er ein stærsta fjölskylduskemmtun landsins. Framkvæmd hlaupsins er í höndum líkamsræktarstöðvarinnar Lífsstíls í Reykjanesbæ. Hlaupið er um götur Reykjanesbæjar. Keppt er í eftirtöldum vegalengdum: 3 km, 7 km og 10 km. Að þessu sinnu renna 500 kr. af hverri skráningu  til Barnaspítala Hringsins til minningar um Björgvin Arnar Atlason.

Reykjanes Maraþon er tilvalið fyrir alla fjölskylduna og hægt að finna vegalendir við allra hæfi. Rásmark og endamark verða við Lífsstíl Líkamsrækt (Hótel Keflavík) V.atnsnesvegi 12, Reykjanesbæ

Public deli
Public deli

Dagskrá og tímasetningar

    Skráning á Hlaup.is lýkur kl 22.00 þriðjudaginn 2. september
    Skráningu á keppnisstað lýkur kl 17.00 (gæti verið fyrr ef uppselt verður)
    Ræsing í allar vegalengdir kl 18:00
    Verðlaunaafhending verður um kl. 19:30

Hlaupaleiðir
Þátttakendur eru hvattir til að kynna sér vel hlaupaleiðir áður en hlaupið er af stað.

Einnig verða upplýsingar um hlaupaleiðir aðgengilegar við upphaf hlaups og við skráningu á staðnum.

Verðlaun
Hlaupið er aldursflokkaskipt í 7 og 10 km. og eru verðlaun fyrir besta árangur í öllum flokkum í 7 km og 10 km. Einnig eru verðlaun eru fyrir besta árangur í 3 km.

Glæsileg útdráttarverðlaun þar sem dregið er úr nöfnum allra þátttakenda m.a. peninga verðlaun!

Þátttökugjald

    3 km: 1.500 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 1.000 fyrir 14 ára og yngri (2.000/1.500 ef skráð á staðnum)
    7 km og 10 km: 2.500 kr fyrir 15 ára og eldri, kr. 1.000 fyrir 14 ára og yngri (3.000/1.500 ef skráð á staðnum)

Skráning
Forskráning er á hlaup.is og lýkur kl 22:00 þriðjudaginn 2. september. Einnig er hægt að skrá sig í Lífsstíl Líkamsrækt (Hótel Keflavík)Vatnsnesvegi við rásmark til kl. 17.00 (gæti verið fyrr ef uppselt verður).