HSS
HSS

Íþróttir

Rene Joensen til Grindvíkinga
Mynd frá fotbolti.net
Þriðjudagur 1. ágúst 2017 kl. 09:12

Rene Joensen til Grindvíkinga

Færeyski landsliðsmaðurinn Rene Joensen staðfestir við færeyska fjölmiðla að hann hafi skrifað undir samning við Grindavík. Sammingurinn er út tímabilið. Fotbolti.net greinir frá þessu.

Rene, sem er 24 ára, getur spilað á báðum köntunum, í bakverði og á miðjunni, en hann var í yngri liðum Bröndby á sínum tíma og lék síðan með HB í heimalandinu 2014 og 2015. Undanfarin tvö ár hefur hann verið hjá Vendsyssel í dönsku B-deildinni.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Rene hefur leikið með öllum yngri landsliðum Færeyja en hann tíu A-landsleiki að baki. Hann kom inn á sem varamaður þegar Færeyingar töpuðu gegn Sviss í undankeppni HM í síðasta mánuði.

Grindvíkingar styrkt leikmannahópinn í júlí en auk Rene hafa þeir Simon Smidt og Edu Cruz komið til félagsins.